Þegar ég fæ núið sent í tölvupósti að þá hef ég alltaf lagt í vana minn að velja kassa 2 þar sem að 3 er hálfgerlega óhappatalan mín og svo er 1 bara svo mikið 1. En þar sem að ég var búin að velja kassa 2 á hverjum degi í hálft ár og var eiginlega aldrei búin að vinna neitt og svo valdi Andri t.d allra aðra kassa en 2 og hann var alltaf að vinna e-ð eins og fótsnyrtingu eða afslátt á gráðostaborgara sem er btw mjög töff sem vinningur
að þá ákvað ég fyrir rúmri viku síðan að velja alltaf kassa 1 þar sem að 3 er óhappatalan mín eins og ég nefndi. En frá og með þeim degi sem ég ákvað að velja alltaf 1 að þá hef ég aldrei unnið neitt og það kemur alltaf: enginn vinningur í dag, vinningurinn var í kassa 2. TÝPÍSKT að vinningurinn komi í kassa 2 um leið og ég hef ákveðið að hætta að velja kassa 2 núna hef ég ákveðið að velja bara KASSA 2 og gefa skít í þetta karma sem er búið að vera í gangi ég svík ekki lit svona auðveldlega og hef verið með bakþanka síðan þessi ákvörðun var tekin…
Annars er allt komið á rið og reglu sambandi með skólann, er að skila seinustu vinnumöppunum og er einnig að nenna ekki að skila þeim. Svo drita ég niður í nokkrar ritgerðir eða stíla eða SAGPROSA eins og þetta heitir á dönsku og svo er seinasti dagurinn á morgun en á öllum líkindum þarf ég bara að mæta í seinasta tímann. Og þá er ég komin í frí og get farið að einbeita mér á prófunum.
Svo kemur sumarfrí………allaveganna á endanum
En ég setti teljara á síðuna bara til þess að sjá hversu margir væru að heimsækja hana, 110 manns á 3 dögum er ansi mikið, ég er greinilega svona ógeðslega vinsæl, en hvar eru öll kommentin frá þessum 110 manns? Teljarinn er stilltur þannig að hver IP tala er skráð einu sinni á hverjum degi…
apríl 29, 2008 klukkan 10:38 am |
Já, það er einmitt þannig YFIRLEITT að fólk fer í frí eða próf á EFTIR SÍÐASTA tímanum sínum.. YFIRLEITT, ekki endilega alltaf samt
en ég skal sko þokkalega vinna þig í þessari keppni.. sjá bloggið mitt
apríl 29, 2008 klukkan 10:52 am |
yfirleitt Ásgeir, yfirleitt
En í próf eftir síðasta tíma og fá svo frí? HA???
apríl 29, 2008 klukkan 10:55 am |
[...] var að hugsa um að koma með leik jafn fáránlegan og Núið sem hún Rakel vinkona bloggaði um í dag. Hann virkar þannig að ég kem með tölu á hverjum degi á bilinu 1 – 100 og sá sem [...]
apríl 29, 2008 klukkan 10:20 pm |
3 er eiginlega happatala mín, dekkaðu þristinn, manstu eftir vestmannaeyjum?